Fotbolti.net
25.09.26 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Önnur félög munu búast við stigafrádrætti eða þyngri refsingu

Önnur félög munu búast við stigafrádrætti eða þyngri refsingu
Canon

Mynd: EPA

Kieran Maguire, sérfræðingur BBC News á sviði fjármála, hefur stungið niður penna eftir tíðindi dagsins af Manchester City.

The Athletic greindi frá því í dag að City hefði verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í stóru kærumáli. Félagið var sakað um brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar á árunum 2009-2018.

„Ég tel að afleiðingarnar verði verulegar. Hér er um að ræða ferli í tveimur þrepum. Til upprifjunar var Chelsea fundið sekt um fjölda brota, bæði af úrvalsdeildinni og enska fótboltasambandinu og þá var refsingin sekt og það var eitthvað sem félagið var fúst að greiða."
Manchester City fundið sekt í nánast öllum ákæruliðum
TENGT EFNI

Manchester City fundið sekt í nánast öllum ákæruliðum

;,Ég geri ráð fyrir því að ef Manchester City verður fundið sekt – við bíðum enn eftir staðfestingu þess efnis – þá muni félagið fagna því mjög ef niðurstaðan verður einungis sekt. Ég býst við að önnur félög og flestir álitsgjafar búist við einhvers konar stigamissi, ef ekki þyngri refsingu."

„Síðan tekur við annað stig málsins, því við höfum nýlega séð að Everton var gert að greiða 35 milljónir punda í kjölfar kröfu frá Burnley. Það gæti farið af stað löng hrina málaferla af hálfu félaga sem telja sig hafa orðið fyrir óréttlæti á því tímabili þegar Manchester City braut reglurnar,"
skrifar Maguire.
Önnur félög munu búast við stigafrádrætti eða þyngri refsingu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.