29.09.26 - 21:01
Brynjar Ingi Erluson
Skilaboðum framkvæmdastjórans lekið

Ferran Soriano

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Ferran Soriano

Mynd: EPA
Ferran Soriano, framkvæmdastjóri Manchester City, sendi starfsfólki félagsins skilaboð eftir að óháð nefnd ensku úrvalsdeildarinnar fann félagið sekt í öllum 115 ákæruliðum sem snúa að brotum á fjárhagsreglum deildarinnar.

TENGT EFNI
Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
Niðurstaða málsins var birt á vef ensku úrvalsdeildarinnar í dag og hefur Man City frest til 2. október til að áfrýja.
Soriano, sem vildi lítið sem ekkert segja í viðtali við Sky fyrr í dag, var hins vegar tilbúinn með skilaboð til starfsfólks Man City í myndbandi sem hefur lekið á netið.
Þar heldur hann áfram að leggja áherslu á að Man City sé saklaust í málinu og að félagið ætli sér að berjast áfram.
„Ég vil deila með ykkur nokkrum upplýsingum um yfirstandandi agamál Man City og ensku úrvalsdeildarinnar. Niðurstaða nefndar úrvalsdeildarinnar hefur nú komið fram og hún er okkur ekki í hag. Ég vil útskýra nákvæmlega hvað þetta þýðir, hver næstu skref eru og hvernig við ætlum að halda áfram að verja félagið og að lokum fá uppreisn æru í þessu máli.“
„Þetta hefur staðið yfir í mjög langan tíma og því er mikilvægt að minna okkur á að allt mál ensku úrvalsdeildarinnar gegn okkur byggir á einni rangri ásökun. Hún snýst um að fjármunum eigandans hafi á einhvern hátt verið leynt komið inn í félagið í gegnum styrktaraðila frá Abu Dhabi. Þetta er einfaldlega ekki rétt.“
„Við höfum lagt fram óhrekjanleg gögn fyrir nefndina sem sýna að þetta gat ekki hafa gerst og gerðist aldrei. Þar má meðal annars finna bankayfirlit, millifærslur, vitnisburð og allt sem þarf til að sýna fram á að peningarnir komu ekki frá eigandanum.“
„Allar hinar röngu ásakanirnar sem hafa verið settar fram gegn okkur og kynntar af miklum krafti byggja á þessari einu grundvallarásökun sem er röng.“
„Það sem kom okkur og lögfræðingum okkar mest á óvart er að eftir næstum tvö ár hefur nefnd úrvalsdeildarinnar komist að niðurstöðu sem styður málflutning deildarinnar. Til að komast að þeirri niðurstöðu þurfti nefndin í raun að horfa fram hjá gríðarlegu magni gagna sem félagið lagði fram.“
„Lögfræðingar okkar munu nú áfrýja niðurstöðunni og benda á að í henni séu augljósar og verulegar villur hvað varðar lög, meginreglur og staðreyndir og að niðurstaðan sé því ekki traust.“
„Munið að við höfum áður verið í þessari stöðu. Árið 2020 var einnig dæmt gegn okkur á sambærilegum forsendum. Við áfrýjuðum þá til óháða íþróttadómstólsins CAS og unnum málið.“
„Við munum ekki gefa neitt eftir. Við munum einbeita okkur að áfrýjunarferlinu og nýta allar aðrar lagalegar leiðir sem standa okkur til boða til að vinna málið.“
„Við munum grípa til allra mögulegra aðgerða til að verja félagið og sækjast eftir skaðabótum frá þeim sem reyna að skaða orðspor þess, bæði núna og í framtíðinni.“
„Ég veit að þetta er áfall, en ég bið ykkur um að halda einbeitingu og hugsa vel um stóru City-fjölskylduna eins og við gerum alltaf. Fylgið hefðbundnu verklagi þegar þið svarið fyrirspurnum frá stuðningsmönnum, samstarfsaðilum og fjölmiðlum.“
„Bráðlega munum við líta til baka og sjá að þetta var enn eitt skiptið í sögu félagsins þar sem við mættum mótlæti og komumst yfir það saman. Takk fyrir,“ sagði Soriano.

???? | BREAKING: #ManCity CEO Ferran Soriano has addressed staff over the guilty verdicts, insisting the club will fight through every available legal avenue:
— City Chief (@City_Chief) September 29, 2026
“The whole Premier League case against us is based on a single false accusation.” pic.twitter.com/63Pf9fsvGw

Mynd: EPA

Mynd: EPA