Fotbolti.net
29.09.26 - 23:04
Brynjar Ingi Erluson

Sögulegt afrek hjá Spánverjum

Sögulegt afrek hjá Spánverjum
Canon

Mynd: EPA

Spánn skrifaði sig á spjöld sögunnar með 4-1 sigrinum á Króatíu í Þjóðadeildinni í kvöld.
Þjóðadeildin: Yamal fór á kostum - England vann tíu leikmenn Tékklands
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Yamal fór á kostum - England vann tíu leikmenn Tékklands

Lamine Yamal skoraði tvö mörk og lagði upp eitt þegar Spánverjar unnu annan leik sinn í riðlinum.

Spænska liðið er í fantaformi og hafa nú ekki tapað landsleik í meira en tvö ár.

Spánverjar eru komnir í 40 leiki í röð án taps og hafa þar með sett nýtt heimsmet á meðal landsliða.

Á þessum tíma hafa þeir unnið 31 leik og gert níu jafntefli, auk þess að verða bæði Evrópu- og heimsmeistarar.

Ítalía á næstlengstu hrinuna en liðið tapaði ekki í 37 landsleikjum í röð á árunum 2018 til 2021.

Spánverjar eiga einnig þriðju lengstu hrinuna ásamt Brasilíu. Spánn fór 35 leiki í röð án taps á árunum 2007 til 2009 og Brasilía gerði slíkt hið sama frá 1993 til 1996.

Marokkó er síðan næst á listanum með 34 leiki í röð án taps frá 2025 til 2026.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.