29.09.26 - 22:45
Brynjar Ingi Erluson
Tuchel: Nú er ég kominn með samviskubit yfir því

Thomas Tuchel

Mynd: EPA

Elliot Anderson í leiknum

Mynd: EPA

Thomas Tuchel

Mynd: EPA
Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, var ánægður með fagmannlega frammistöðu liðsins í 2-0 sigrinum á Tékklandi í Þjóðadeildinni í kvöld.

TENGT EFNI
Þjóðadeildin: Yamal fór á kostum - England vann tíu leikmenn Tékklands
Englendingar unnu tíu leikmenn Tékklands með mörkum Anthony Gordon og Harry Kane.
Fyrsti sigur Englendinga undir stjórn Tuchel er þar með kominn í hús og var hann ánægður með frammistöðuna.
„Við spiluðum mjög fagmannlegan síðari hálfleik. Við stigum upp þegar þörf var á, vorum hraðari í spilinu og það var meiri hraði á boltanum. Við verðskulduðum að vinna þennan síðari hálfleik.“
„Eftir rauða spjaldið urðum við mun líklegri til að vinna leikinn, en það er auðvitað líka mikilvægt að halda hreinu. Það gefur góða tilfinningu. Það er alltaf eitthvað sem má bæta, en á heildina litið var þetta alvarleg frammistaða og verðskuldaður sigur.“
Trent Alexander-Arnold byrjaði sinn fyrsta landsleik í tæp tvö ár og átti stórglæsilega stoðsendingu á Gordon í fyrra markinu.
„Hann gerði mjög vel og átti stórkostlega stoðsendingu. Á heildina litið var hann, eins og allir aðrir, mjög fagmannlegur, með topp viðhorf og reyndist okkur mikilvægur.“
England mætir Króatíu næst og liðið verður áfram í Prag í stað þess að fljúga aftur til Englands.
„Við fáum þrjá daga sem skipta sköpum milli leikja. Við ákváðum að ferðast ekki aftur til Englands heldur vera eina nótt til viðbótar í Prag, ná góðri hvíld og ferðast svo til Króatíu og taka tvær æfingar þar.“
„Við reynum að hafa alla heila fyrir þann leik, jafnvel Nico O'Reilly og Ezri Konsa, en við vitum meira fljótlega. Næsti leikur er mjög mikilvægur fyrir okkur gegn mjög beinskeyttum mótherja og við viljum vinna.“
Tuchel var einnig spurður hvort hann hefði rætt sérstaklega við Elliot Anderson og Marc Guehi, leikmenn Manchester City, vegna stöðunnar hjá félaginu. Man City var dæmt sekt í 115 ákæruliðum vegna brota á fjárhagsreglum og var spurt hvort málið gæti haft áhrif á leikmennina.
„Ég gerði það ekki og nú er ég kominn með samviskubit yfir því. Ég gerði það ekki því ég var alveg einbeittur á allt það sem við þurfum að eiga við hér og að undirbúa liðið. Ég talaði ekki við þá um þetta mál og mun ekki tjá mig um það.“
„Marc var stórkostlegur í dag eftir erfiðan leik gegn Spáni. Viðbrögðin voru í hæsta gæðaflokki og Anderson átti mjög góðan leik sömuleiðis,“ sagði Tuchel.