Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. október 2022 06:00
Fótbolti.net
Uppgjör við enska hringborðið á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Fyrsta fjórðungsuppgjör ensku úrvalsdeildarinnar verður í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Þátturinn er á sínum stað milli 12 og 14.

Elvar Geir og Tómas Þór byrja þáttinn á því að fara yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum.

Klukkan 12:30 verður svo enska hringborðið dregið fram og sérfræðingur þáttarins, Kristján Atli Ragnarsson, velur lið tímabilsins hingað til og þá bestu.

Í lok þáttar verður svo skoðað hvað er að gerast í lokaumferð Bestu deildarinnar.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner