Ólafur Karel Eiríksson hefur framlengt samning sinn við Gróttu en þessi 21 árs gamli leikmaður lék 14 leiki með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Hann er uppalinn í Breiðablik en lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Kára í 2. deild árið 2019. Ári síðar gekk hann til liðs við Gróttu og lék fimm leiki í efstu deild með félaginu.
„Knattspyrnudeild Gróttu fagnar því að Ólafur Karel hafi framlengt samning sinn við félagið og hlakkar til áframhaldandi samstarfs." Segir í tilkynningu félagsins.
Grótta hafnaði í 3. sæti í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð.
Athugasemdir