Fotbolti.net
30.01.23 - 12:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Cancelo á leið til Bayern á láni

Cancelo á leið til Bayern á láni
Canon

Mynd: EPA

Portúgalski bakvörðurinn Joao Cancelo er á leið til Bayern Munchen á láni út tímabilið. Þetta kemur fram á The Athletic í dag.
Cancelo, sem er 28 ára gamall, hefur verið í takmörkuðu hlutverki undanfarnar vikur. Hann hefur ekki verið í byrjunarliði City í síðustu þremur leikjum.

Cancelo hefur verið í liði ársins í úrvalsdeildinni undanfarin tvö tímabil og lék 36 leiki á síðasta tímabili þegar City varð meistari.

Rico Lewis, Nathan Ake, John Stones og Kyle Walker hafa allir spilað meira en Cancelo undanfarnar vikur. Fjallað hefur verið um að Cancelo sé ósáttur hjá City og þá hefur verið sett spurningamerki við viðhorf hans á æfingasvæðinu.

Samningur Cancelo við City gildir fram á sumarið 2027 og er möguleiki á því að það verði kaupákvæði í samningnum. Fyrsti leikur Cancelo hjá Bayern gæti verið gegn Mainz á miðvikudag eða gegn Wolfsburg um næstu helgi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.