Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 30. janúar 2023 23:48
Ívan Guðjón Baldursson
Southampton reynir við Vitinha og Dembele
Mynd: Getty Images

Southampton vill styrkja leikmannahópinn sinn á lokadegi janúargluggans og eru þeir á höttunum eftir sóknarmanni. Þeir eru að reyna við tvö skotmörk á sama tíma.


Dýrlingarnir vilja kaupa portúgalska sóknarmanninn Vitor Oliveira, eða Vitinha, frá Braga en félagið vill ekki selja. Hann er þó með 26 milljón punda riftunarákvæði í samningnum sínum sem Southampton gæti nýtt sér.

Vitinha er 22 ára gamall og hefur skorað 13 mörk og gefið 5 stoðsendingar í 27 leikjum á tímabilinu. Hann hefur meðal annars komið að fimm mörkum í fimm leikjum í Evrópudeildinni.

Southampton er einnig á eftir Moussa Dembele, sóknarmanni Lyon, sem þykir alltof mistækur í Frakklandi og er ekki að eiga gott tímabil, með aðeins 2 mörk í 16 leikjum. Hann skoraði þó 22 mörk í 36 leikjum á síðustu leiktíð og hefur í heildina gert 69 mörk í 160 leikjum hjá Lyon.

Dembele rennur út á samningi næsta sumar og er ekki útilokað að Southampton kræki í báða þessa leikmenn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner