„Ég er mjög spennt fyrir þessu, þetta er mjög spennandi deild og spennandi lið. Þetta lofar allt mjög góðu enn sem komið er," segir Ásdís Karen Halldórsdóttir sem gekk á dögunum í raðir spænska úrvalsdeildarfélagsins Madríd CFF frá Lilleström í Noregi.
Ásdís er 25 ára gömul og er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst flestar stöðurnar framarlega á vellinum. Hún var fastamaður í byrjunarliði Lilleström og skoraði fjögur mörk í 22 leikjum fyrir Lilleström í efstu deild norska boltans. Þar áður var Ásdís á mála hjá Val en hún hefur einnig spilað fyrir KR á ferlinum.
Ásdís er 25 ára gömul og er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst flestar stöðurnar framarlega á vellinum. Hún var fastamaður í byrjunarliði Lilleström og skoraði fjögur mörk í 22 leikjum fyrir Lilleström í efstu deild norska boltans. Þar áður var Ásdís á mála hjá Val en hún hefur einnig spilað fyrir KR á ferlinum.
„Ég var búin að heyra af áhuga fyrir einhverju síðan. Ég var samningsbundin Lilleström og ég var ekki viss um hvort ég gæti farið. Þau voru búin að segja mér að þau vildu ekki að ég myndi fara en það voru félög sem sýndu mér áhuga síðasta sumar. Ég var undirbúin fyrir allt. Ég er mjög sátt við það að koma hingað. Það var á milli jóla og nýárs sem ég heyrði fyrst af tilboðum og um tíu dögum seinna var komið samþykkt tilboð," segir Ásdís.
„Ég var ánægð að þetta hafi gengið í gegn, ég var að vonast til þess. Þetta var búið að vera ansi erfitt tímabil í Noregi og sérstaklega seinni hlutann. Það voru fjárhagsvandræði í félaginu og á kafla vissi maður ekki hvað myndi gerast fyrir félagið. Í fréttunum var talað um að það væri að fara á hausinn. Það var óþægilegt."
Leikbreytir að hafa Hildi þarna
Ásdís segist strax hafa orðið spennt fyrir Madríd en hún þurfti ekki að leita langt til að fá upplýsingar um félagið. Hildur Antonsdóttir, liðsfélagi hennar í landsliðinu, hefur leikið fyrir Madríd síðustu mánuðina.
„Ég var alveg strax spennt fyrir þessu. Ég var búin að tala við Hildi í landsliðsferð um þetta félag og hún var búin að segja mér frá þessu. Ég vissi um þetta áður en ég frétti að þau hefðu áhuga á mér. Hún hafði mjög góða sögu að segja af öllu hérna. Maður var ekki með neinar efasemdir og ég þurfti ekki að fara í einhverja brjálaða rannsóknarvinnu," segir Ásdís.
„Það er algjör leikbreytir að hafa Hildi hérna með sér. Það tala ekki allir ensku hér og það er gott að tala íslensku. Það er allt útskýrt á spænsku á æfingunni og Hildur er fljót að segja mér hvað á að gera. Hún er orðin mjög góð í spænsku en það er spænskukennsla tvisvar í viku fyrir útlendingana í liðinu. Ég er bara búin að vera í tvær vikur og byrja í kennslu í næstu viku. Ég tók spænsku í menntaskóla og þarf að fara að rifja hana upp núna."
Tvær saman að komast inn í hlutina
Spænska deildin er hálfnuð en Ásdís Karen kláraði sitt tímabil í Noregi.
„Ég kom á sama tíma og norsk stelpa úr Rosenborg. Það er fínt að við séum tvær saman í því að komast inn í liðið. Auðvitað er alltaf erfitt að komast inn í nýtt land og allt nýtt. Þetta krefst mikillar orku og einbeitingu. Svo er liðið á miðju tímabili en tímabilið mitt kláraðist í lok nóvember. Við tvær erum á aðeins öðrum stað. Ég var dugleg að æfa sjálf í jólafríinu en vonandi verð ég komin á aðeins betri stað eftir tvær vikur," segir Ásdís og bætir við:
„Mér líst mjög vel á gæðastigið í liðinu og í deildinni, þetta er mjög gott lið. Það eru margir góðir leikmenn. Hérna erum við 22-23 á æfingum og þetta eru allt atvinnukonur. Þetta er mikið fagumhverfi og mjög teknískt góðir leikmenn. Ég hef bara tekið þátt í tveimur leikjum en ég finn strax að þetta er aðeins öðruvísi bolti en í Noregi. Þetta er aðeins hraðari og teknískari bolti. Sóknaruppbygingin er mjög hröð og það er meira hugsað um sóknarleik."
Áhugaverður tími í Noregi
Það er ekki annað hægt að segja en að Ásdís hafi fengið að upplifa áhugavert umhverfi í Lilleström. Hún spilaði mikilvægt hlutverk í liðinu en utan vallar voru ekki góðir hlutir að gerast í félaginu. Lilleström var nálægt gjaldþroti og það litaði stemninguna.
„Tíminn í Noregi var áhugaverður. Þetta byrjaði allt mjög vel. Við vorum mjög góða leikmenn, stelpur í norska landsliðinu og öðrum landsliðum líka. Okkur gekk vel í byrjun en svo komu upp þessi fjárhagsvandræði. Það fóru fjórar eða fimm úr byrjunarliðinu og svo hætti ein. Við misstum allt í einu sex byrjunarliðsleikmenn. Það var mikil breyting á liðinu frá því ég byrjaði og þangað til um sumarið," segir Ásdís.
„Svo komu þessir fundir um hvernig þetta myndi vera í framhaldinu. Auðvitað litaði þetta stemninguna. Fólk var mikið að pæla í þessu. Auðvitað reyndum við að pæla í því að vinna leiki en það var erfitt. Svo var verið að taka af okkur stig og svona. Þetta var steikt."
Mjög ánægð að hafa klárað þetta
Hún segist vera mjög ánægð með það að hafa komist í gegnum þetta og hafa klárað þetta með stæl en Lilleström endaði í þriðja sæti norsku deildarinnar á síðasta tímabili þáatt fyrir allt vesenið.
„Ég er mjög ánægð að hafa klárað þetta. Ég reyndi að standa mig eins vel og ég gat. Ég meiddist og kom vel til baka. Þetta var krefjandi á alla vegu en ég er ánægð að hafa klárað þetta. Svo kom þetta upp og þá varð ég enn ánægðari að hafa staðið mig vel þrátt fyrir þetta allt. Ég er hungruð því mér finnst ég eiga meira inni. Allt sem var í gangi tók sinn toll," segir Ásdís og bætir við:
„Þetta var mjög óþægilegt og skrítið. Það var ekki mesta orkustigið á æfingum og maður fann að þetta tók líka á fyrir þjálfarana. Þetta lenti á öllum, ekki bara leikmönnunum. Við stóðum okkur samt vel og vorum næstum því búnar að ná þriðja sæti í deildinni."
„Við vorum sterkur hópur. Fyrir okkur sem einstaklinga var mikilvægt að standa sig vel og við gerðum það. Þó þetta hafi verið erfitt, þá var þetta líka gaman. Ég er ánægð að hafa náð að standa mig það vel að ég hafi getað komist hingað. Þetta er mikil vegferð. Þetta er ekki alltaf svart eða hvítt. Ég er búin að læra að þetta er upp og niður."
Mikill munur á Lilleström og Madríd
Núna hefst nýr og spennandi kafli á ferlinum í spænsku höfuðborginni. Veðrið er ekki frábært núna en það er margt um að vera og skemmtilegur tími framundan.
„Það er mikill munur á Lilleström og Madríd. Í Lilleström labbaði ég bara út um allt. Þetta er bara lítill bær. Ég bý hérna aðeins fyrir utan miðbæ Madríd en þú þarft að vera með bíl hérna. Það er líka endalaust af verslunarmiðstöðvum og allt stórt. Mér finnst samt bæði mjög fínt. Hildur hefur verið að sýna mér mikið og hún hefur verið að skutla mér á meðan ég bíð eftir bílnum mínum. Hún er búin að vera ógeðslega góð og hjálpað mér að aðlagast," segir Ásdís.
„Þetta er gríðarlega spennandi. Þetta er stór gluggi þessi deild. Það eru mörg augu að horfa. Ég er mjög spennt. Ég gerði tveggja og hálfs árs samning og þetta verður örugglega gaman."
Stærra skref
Ásdís Karen hefur verið í kringum landsliðshópinn og vonast hún til að þetta skref hjálpi sér þar. Næsta sumar er Evrópumótið og þar langar öllum leikmönnum að vera.
„Ég vona að þetta geti hjálpað mér varðandi landsliðið. Ég er alltaf að reyna að taka skref fram á við til að geta komist í það. Eftir því sem þú tekur stærri skref og ert í betra liði, þá aukast líkurnar. Það er alltaf geggjaður plús að vera þar. Auðvitað vil ég ná að vera á EM en það er undir mér komið að standa mig. Ég er spennt að takast á við þetta og vonandi skilar það mér þangað," sagði þessi öflugi leikmaður að lokum.
Athugasemdir