Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viðtal
„Mikil viðurkenning að svona stórt félag sé tilbúið að borga mikið fyrir mann"
Gísli Gotti fer yfir skiptin til Lech Poznan, toppliðsins í Póllandi
Gísli Gottskálk Þórðarson.
Gísli Gottskálk Þórðarson.
Mynd: Lech Poznan
Stóð sig frábærlega með Víkingum.
Stóð sig frábærlega með Víkingum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samdi við toppliðið í Póllandi.
Samdi við toppliðið í Póllandi.
Mynd: Lech Poznan
Sambandsdeildin var stór gluggi.
Sambandsdeildin var stór gluggi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir leik með Víkingum.
Eftir leik með Víkingum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Árnason og Arnar Gunnlaugsson.
Kári Árnason og Arnar Gunnlaugsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í leik með U21 landsliðinu.
Í leik með U21 landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður fróðlegt að fylgjast með Gísla í Póllandi.
Það verður fróðlegt að fylgjast með Gísla í Póllandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrsti leikur á morgun.
Fyrsti leikur á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég gerði mér alveg grein fyrir því hvað þetta er stórt félag og allt í kringum þetta stórt. Ég var búinn að undirbúa mig fyrir að þetta yrði mikil breyting," segir Gísli Gottskálk Þórðarson, miðjumaðurinn öflugi, í viðtali við Fótbolta.net.

Hann gekk fyrr í mánuðinum í raðir Lech Poznan, toppfélagsins í Póllandi, eftir að hafa slegið í gegn með Víkingum hér heima.

„Það hefur gengið vel að aðlagast og mér líður mjög vel. Ég tel mig vera mjög heppinn með lið þar sem þetta er góður hópur. Það eru mikil gæði á æfingum og þetta er skref upp á við."

Gísli fór beint í æfingaferð til Tyrklands eftir að hann skrifaði undir og fékk þar að kynnast nýjum liðsfélögum sínum. Á morgun er fyrsti deildarleikurinn eftir að Gísli skrifaði undir og þar fær hann að sjá það enn betur hversu stórt skref hann var að taka.

„Auðvitað er þetta stærra en ég held að það komi enn betur í ljós þegar deildin byrjar aftur. Það er fyrsti leikur á morgun og það eru 30 þúsund miðar seldir á þann leik nú þegar. Það eru miklar kröfur frá stuðningsmönnum. Þetta mun koma á næstu vikum og það er undir mér að höndla það," segir Gísli.

Mikill áhugi og sérstaklega frá Póllandi
Það var gríðarlegur áhugi á Gísli áður en hann gekk í raðir Lech. Ekki var það skrítið miðað við tímabilið sem hann átti. Hann var efnilegasti leikmaðurinn í Bestu deildinni og spilaði svo ótrúlega vel í Sambandseildinni. Stundum var eins og maður væri að horfa á 35 ára gamlan miðjumann sem hokinn var af reynslu, ekki tvítugan gutt sem er að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki.

„Það var gott vandamál að hafa að þurfa að velja á milli. Það var mikið af fundum og maður var að kynnast fullt af fólki. Það var svolítið erfitt að halda hausnum á réttri braut. Það eru allir að segja hitt og þetta. Ég þurfti að hugsa um hvað væri best fyrir mig. Þetta var ákvörðun sem ég hugsaði um heillengi og mér fannst þetta best í stöðunni. Þetta var góð reynsla fyrir mig," segir Gísli.

„Það voru nokkrir möguleikar sem voru líklegastir en frá fyrsta degi var þetta mjög spennandi. Mér fannst þetta mikið passa við það hvernig leikmaður ég er og meira. Þetta var mjög heillandi."

Gísli var orðaður við félög á Norðurlöndum en mestur virtist áhuginn í Póllandi. Hvernig gerðist það?

„Ég veit það ekki alveg. Það er góð spurning. Kannski hefur það eitthvað með það að gera að þegar besta félagið í Póllandi sýnir áhuga, að þá komi fleiri félög að borðinu. Það gæti líka hafa verið einhver landsleikur eða Evrópukeppnin. Ég veit það að Lech var að fylgjast mjög vel með mér í Sambandsdeildinni. Það er kannski aðalástæðan. Það var mikill áhugi frá Póllandi og það var gaman, eitthvað nýtt," segir Gísli.

Það er ekki nóg að vera bara í þessari keppni
Að keppa í Evrópu var stór gluggi fyrir leikmenn Víkinga og það var gluggi sem Gísli nýtti sér vel.

„Sambandsdeildin var risagluggi. Ég held að það sjái allir. Við gerðum svo vel. Það er ekki nóg bara að vera í þessari keppni, þú þarft líka að standa þig vel. Við stóðum okkur mjög vel og Víkingur er enn í keppninni. Það var mjög stór gluggi sem mér fannst allt liðið nýta mér mjög vel. Það eru örugglega bestu minningarnar í Víkinni, þessi Evrópukeppni," segir Gísli en leikmenn Víkinga gerðu frábærlega fyrir félagið sitt fjárhagslega með góðum árangri í Evrópu.

„Ég er ánægður að við sem lið höfum náð að gera svona vel fyrir félagið okkar. Fyrir mér verður mjög spennandi að fylgjast með framhaldinu hjá félaginu. Það er mikið af góðu fólki þarna og ég held að Víkingur sé í toppmálum. Það er gott að við gátum gefið eitthvað af okkur."

Persónulega hjálpaði Gísli líka Víkingum fjárhagslega þar sem Lech borgaði vel fyrir hann. Talað hefur verið um eina stærstu sölu í sögu íslenska fótboltans.

„Það er meiri ábyrgð og pressa, en það er geggjað að félag sé tilbúið að borga mikið fyrir mann. Það þýðir að það er ætlast til mikils af manni. Það er bara undir mér að höndla það og borga til baka. Það er mikil viðurkenning að svona stórt félag sé tilbúið að borga mikið fyrir mann," segir Gísli.

Hugsunarhátturinn svipaður
Gísli þurfti að vera þolinmóður í Víkingi. Hann kom ungur til félagsins eftir dvöl á Ítalíu og samkeppnin var mikil. Í fyrra fékk hann tækifærið og sleppti því svo ekki.

„Hugsunarháttur minn er svipaður í þessu skrefi og þegar ég tók Víkingsskrefið. Þá vildi ég fara í eins gott lið og hægt var, og reyna að vinna mig upp. Það tók smá tíma. Ég horfi í það sama hér," segir Gísli.

„Þetta er eitt af stærstu félögunum hérna. Þegar maður er að spila alla leiki hér þá er maður á mjög góðum stað og þá gæti skrefið verið enn hærra eftir það. Frá fyrsta degi er ég að mæta til að berjast um sæti í liðinu. Ég er samt þolinmóður og átta mig á því í hvaða lið ég er kominn. Það verður mikil vinna að komast í byrjunarliðið hér, en ég er tilbúinn að leggja það á mig að ná því markmiði."

„Núna fer deildin að byrja og það er spennandi að sjá hvaða hlutverk maður fær í byrjun. Ég geri langtímasamning hér. Ég veit að þetta getur tekið tíma en ég mun gera mitt allra besta. Ég er mjög glaður hérna, þetta verður veisla," segir miðjumaðurinn efnilegi og bætir við:

„Þetta gæti 100 prósent verið góður stökkpallur en ég hugsa það þannig að það er alveg nógu stór stökkpallur í bili að koma mér í liðið hérna. Ég er ekkert að horfa neitt lengra en þar sem ég er núna. En það er augljóst að ef maður nær því markmiði að verða lykilmaður hér, þá er skrefið upp á við mjög líklegt. En ég er ekkert að horfa lengra en bara núna. Ég er ekki einu sinni búinn að spila fyrsta alvöru leikinn og það er bara eitt skref í einu."

Kári hefur gríðarlega trú
Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingum, hefur gríðarlega trú á Gísla en hann sagði á dögunum við Fótbolta.net að leikmaðurinn gæti orðið „Premier League góður". Gísli var spurður út í þau ummæli.

„Það er alltaf gaman þegar menn með svona sterka rödd innan fótboltans hafa trú á manni. Kári hefur hjálpað mér ógeðslega mikið frá því ég kom í Víkinga og hann hafði alltaf trú á mér. Ég á honum mikið að þakka. Það er mjög gaman að heyra þetta og það gefur manni enn meiri hvatningu," segir Gísli sem á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.

Líst vel á nýja landsliðsþjálfarann
Með þessu skrefi er Gísla auðvitað að koma sér enn nær landsliðinu, ef hann fær gott hlutverk.

„Maður er alltaf að hugsa um hvað manni langar að vera í landsliðinu. Auðvitað er maður kominn nær því þegar maður er kominn í stórt félag. En það er bara sama, að ef maður nær að vera lykilmaður hér þá verður maður líklega nálægt landsliðinu. En svo verður það bara að koma í ljós. Það er mikil vinna framundan hjá mér," segir Gísli en hvernig líst honum á nýja landsliðsþjálfarann? Arnar Gunnlaugsson, fyrrum þjálfari Víkinga, tók við liðinu á dögunum.

„Mér líst mjög vel á þá ráðningu. Ég held að það sé geggjað fyrir okkur sem þjóð. Ég get ekki talað nógu vel um hann sem þjálfara eftir að hafa verið hjá honum í Víkingi. Ég er ekkert eðlilega þakklátur fyrir tímann hjá honum. Mér fannst hann gera góða hluti fyrir mig og hann hjálpaði mér að verða tilbúinn, góður á öllum hliðum leiksins. Hann er geggjaður þjálfari og það er mjög spennandi kynslóð framundan hjá Íslandi. Ég held að hann geti gert mjög góða hluti."

Stígur inn á stærra svið
Gísli er núna búinn að koma sér vel fyrir í Poznan, sem er skemmtileg borg og það styttist í að alvaran hefjist. Á morgun er fyrsti leikur í deild eftir jólafrí þegar Lech tekur á móti Widzew Lódz.

„Ég er búinn að koma mér mjög vel fyrir og félagið hjálpar mikið. Það er teymi hér sem sér um útlendingana sem koma. Það eru geggjaðir gæjar sem eru að hjálpa mér á fullu. Það var allt græjað í fyrstu vikunni. Ég hef komið mér mjög vel fyrir í mjög góðri íbúð. Ég er líka með bíl. Það var geggjað að þurfa ekki að pæla of mikið í einhverju þannig. Þeir leggja mikið upp úr því að ég geti bara hugsað um fótboltann."

„Ég held að það verði gott að fá deildina aftur í gang. Við höfum verið á litlu undirbúningstímabili. Það verður gaman fyrir mig að fara á stærra svið. Ég vonast til að koma mér í eins stórt hlutverk og hægt er frá byrjun," segir Gísli. Að lokum sagði hann:

„Ég er mjög ánægður með tímann í Víkinni og ég eignaðist marga vini þar. Það er erfitt að lýsa stemningunni í Víkinni með orðum. Ég held að Arnar (Gunnlaugsson) hafi talað um að það væri lífstíll að vera Víkingur og ég er mjög sammála því."
Athugasemdir
banner
banner