Daley Blind, leikmaður Ajax og hollenska landsliðsins, meiddist illa í 7-0 sigri Hollands gegn Gíbraltar í undankeppni HM í kvöld en það þurfti að bera hann af velli.
Heimavöllur Gíbraltar er Victoria-leikvangurinn en hann er gerður úr gervigrasi,
Blind var að verjast sókn heimamanna er hann rann og festi sig í grasinu með þeim afleiðingum að hann sneri upp á ökklann.
Hann var borinn af velli og kom Donyell Malen inná í hans stað en hægt er að sjá atvikið með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Sjáðu atvikið hér
Athugasemdir