Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 30. apríl 2021 16:00
Elvar Geir Magnússon
Mbappe tæpur fyrir seinni leikinn gegn City
Mynd: Getty Images
Kylian Mbappe, einn besti fótboltamaður heims, er í kapphlaupi við tímann til að verða klár fyrir seinni leik Paris Saint-Germain gegn Manchester City í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Kálfameiðsli eru að plaga Mbappe og hann verður ekki með PSG gegn Lens í frönsku deildinni á morgun.

City vann fyrri leikinn gegn PSG 2-1 á útivelli og liðin mætast í seinni leiknum á þriðjudag. Mbappe náði sér engan veginn á strik í fyrri leiknum og fékk slæma dóma í fjölmiðlum.

Mbappe átti aðeins 30 snertingar á boltann og átti ekkert skot. L'Equipe sagði að hann hafi verið ósýnilegur í leiknum. Það voru þó fleiri leikmenn PSG slappir en liðið tapaði niður forystu.
Athugasemdir
banner