Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. apríl 2021 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spá þjálfara í 2. deildinni: 6. sæti
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Reynir Haralds
Reynir Haralds
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alexander Kostic
Alexander Kostic
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jordan Farahani
Jordan Farahani
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Jörgen og Arnar Halls
Jörgen og Arnar Halls
Mynd: ÍR
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ÍR 66 stig
7. KV 52 stig*
8. KF 52 stig
9. Kári 39 stig
10. Reynir S. 36 stig
11. Fjarðabyggð 35 stig
12. Völsungur 33 stig

*KV var hæst spáð 4. sæti en KF var hæst spáð 5. sæti.

Lokastaða í fyrra: ÍR endaði í 9. sæti deildarinnar eftir að hafa verið spáð 6. sætinu. ÍR endaði með nítján stig, þremur stigum meira en Víðir sem féll. Þrettán af nítján stigum voru tekin á heimavelli. Liðið var lengstan hluta mótsins í 2. deild og endaði með 31 mark skorað og 39 mörk fengin á sig.

Þjálfarinn: Arnar Hallsson tók við af Jóhannesi Guðlaugssyni eftir síðasta tímabil. Arnar lék á sínum ferli með Víkingi Reykjavík og ÍR. Hann var fyrst aðalþjálfari í meistaraflokki árið 2018 og var þjálfari Aftureldingar í tvö ár.

Álit Ástríðunnar:
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan er leiðandi í umfjöllun um 2. deild. Þáttarstjórnendur gefa sitt álit á liðunum fyrir mót.

Ástríðan segir – ÍR
„ÍR-ingar mæta með glænýtt lið til sögunnar. Arnar Hallsson hefur tekið við liðinu en hann vann 2. deildina árið 2018 með liði Aftureldingar. Ákveðin kynslóðaskipti hafa átt sér stað í leikmannahóp Breiðhyltinga. Áhugavert verður að sjá hvernig nýja blandan mun skila sér á komandi sumri."


Styrkleikar: „Eru með frábæran þjálfara sem nær einstaklega vel til ungra og sprækra leikmanna. Þeir munu pressa liðin í hörkuformi á sama tíma og burðarstólparnir Jordian Farahani, Aleksandar Kostic og Reynir Haraldsson eru reynslumiklir leikmenn sem munu gegna lykilhlutverki hjá ÍR í sumar. Þá hafa þeir fengið Jorgen Pettersen frá Noregi sem er einkar áhugaverður leikmaður og ætti að styrkja liðið helling."

Veikleikar: „ Á meðan margir hafa komið inn hafa einnig margir farið út. ÍR hefur alltaf verið mikið stemningslið sem hefur farið langt á liðsheildinni. Margir ungir strákar eru í liðinu og eins og áður er óvíst hvernig þeir munu höndla mótbyr. Hvernig munu þeir bregðast við því að lenda undir? Hvernig munu þeir bregðast við 2-3 tapleikjum í röð? Þá er spurning hvort breiddin í vörnini sé nægilega mikil."

Lykilmenn: Jordian Farahani, Aleksandar Kostic og Reynir Haraldsson

Gaman að fylgjast með: Jorgen Pettersen frá Noregi er einkar áhugaverður leikmaður og ætti að styrkja liðið helling.

Komnir:
Arian Ari Morina frá Ými
Aron Óskar Þorleifsson frá KÁ
Ágúst Unnar Kristinsson frá Breiðabliki
Emil Andri Auðunsson frá Víkingi R.
Emil Skorri Brynjólfsson frá HK
Hilmir Vilberg Arnarsson frá Víkingi
Hörður Máni Ásmundsson frá Ými
Jordian Farahani, Chico frá Elliða
Jón Kristinn Ingason frá HK
Jörgen Petterson frá Noregi
Patrik Hermannsson frá HK
Rees Greenwood frá ÍR
Sveinn Óli Guðnason frá Þrótti á láni
Sæmundur Sven Schepsky frá Elliða

Farnir:
Ari Viðarsson í Létti
Ágúst Freyr Hallsson í Elliða (var á láni)
Brynjar Örn Sigurðsson í Létti
Gylfi Brynjar Stefánsson í Kára
Helgi Freyr Þorsteinsson hættur
Hrafn Hallgrímsson í ÍA (var á láni)
Ísak Óli Helgason
Ívan Óli Santos í HK
Jónatan Hrjóbjartsson Léttir
Kristján Jóhannesson í Létti (á láni)
Már Viðarsson Léttir
Stefnir Stefánsson í ÍH
Styrmir Erlendsson hættur (á láni)
Viktor Örn Guðmundsson í ÍH (á láni)

Fyrstu þrír leikir:
8. maí Leiknir F heima
15. maí Völsungur úti
21. maí Þróttur V. heima

Sjá einnig:
Hin hliðin - Reynir Haraldsson
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner