Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
banner
   fim 30. apríl 2026 15:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hlíðarenda
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Aron Sigurðarson, fyrirliði KR.
Aron Sigurðarson, fyrirliði KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er spennandi. Það er alltaf gaman að spila gegn Val og hvað þá undir flóðljósunum á laugardegi. Við erum klárir og mætum gíraðir," sagði Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, þegar hann ræddi við Fótbolta.net í dag.

Á laugardag er stórleikur þegar erkifjendurnir í Val og KR eigast við á Hlíðarenda. Þetta eru sérstakir leikir að spila.

„Það er ekki hægt að ljúga neinu um það. Þetta er grannaslagur og allur sá pakki. Það er alltaf extra kitl að spila þessa leiki."

Byrjunin á tímabilinu hefur verið frábær fyrir KR og liðið er með fullt hús stiga á toppnum. „Við lentum í alvöru brekku (í fyrra) og þurftum að skríða saman út úr henni sem lið. Í kjölfarið urðum við sterkari hópur, samheldnari hópur og mér finnst allir vera komnir með sterkari haus."

Er erfitt að fara ekki fram úr sér eftir svona byrjun?

„Nei, í raun ekki. Það er svo stutt á milli að við töpum á móti Keflavík og í næsta leik sýnum við hvað í okkur býr," sagði Aron en núna er komið að stærsta prófinu til þessa.

„Það mætir fullt af fólki á völlinn, þetta er undir ljósunum, það eru margar myndavélar, mikið umtal - þess vegna ertu í þessu. Þetta eru leikirnir sem þú vilt stíga upp í og koma með þína bestu frammistöðu," sagði Aron.

Allt viðtalið er í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
banner
banner
banner
banner