„Þetta verður væntanlega hörkuleikur. Það gerir leikinn extra spennandi að - þó stutt sé liðið af mótinu - þá sé þetta í ákveðinni toppbaráttu," sagði Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Þetta eru alltaf sérstakir leikir. „Það hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val að vinna KR. Við höfum verið með ágætis tak á þeim hingað til og þurfum að halda því áfram."
Þetta eru alltaf sérstakir leikir. „Það hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val að vinna KR. Við höfum verið með ágætis tak á þeim hingað til og þurfum að halda því áfram."
Rætt var um það á fréttamannafundinum að KR hefur ekki gengið vel að mæta á Hlíðarenda síðustu ár. „Ég er eiginlega sammála því sem Óskar (Hrafn Þorvaldsson) sagði. Það er oft farið yfir síðustu leiki en hver leikur hefur sitt líf."
„Það hjálpar okkur ekki að við höfum unnið þá stórt í fyrra. En að sama skapi höfum við verið virkilega sterkir hér á Hlíðarenda og ég veit að liðum þykir erfitt að mæta hingað. Við þurfum að halda því áfram."
Valur hefur spilað vel upp á síðkastið. „Við stöndum uppi eftir fjóra leiki með níu stig og það er bara fínt."
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.























