Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 30. maí 2026 11:12
Brynjar Ingi Erluson
Vill fá framtíðina á hreint fyrir HM
Mynd: EPA
Franski miðvörðurinn Ibrahima Konate vill fá framtíð sína á hreint áður en hann kemur til móts við franska landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið, en hann er orðaður við þrjú félög.

Nokkrir af virtustu blaðamönnum Englands sögðu frá því á dögunum að Konate verði ekki áfram hjá Liverpool, þrátt fyrir að hann hafi verið nálægt samkomulagi í síðasta mánuði.

Hann mun því yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í næsta mánuði.

L'Equipe segir Konate eftirsóttan en þrjú félög berjast um undirskrift hans.

Chelsea, Bayern München og Real Madrid hafa öll áhuga á Konate, sem vill fá framtíðina á hreint áður en heimsmeistaramótið fer af stað.

Frakkar ferðast á HM þann 10. júní og þykir líklegt að mál hans verði frágengin fyrir þann tíma.

Konate, sem er 27 ára gamall, kom til Liverpool frá RB Leipzig árið 2021. Á þeim tíma hefur hann unnið fimm titla, þar á meðal ensku úrvalsdeildina á síðasta ári.
Slapp
banner
banner
banner