Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 30. maí 2026 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Völdu stjóra tímabilsins
Regis Le Bris.
Regis Le Bris.
Mynd: EPA
Tímabilinu er lokið á Englandi og þá er um að gera að fara yfir ýmislegt. Í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í vikunni voru ýmsar viðurkenningar veittar fyrir tímabilið.

Stjóri tímabilsins var valinn en fjórir komu til greina:

Andoni Iraola (Bournemouth)
Regis Le Bris (Sunderland)
Mikel Arteta (Arsenal)
Unai Emery (Aston Villa)

Allir þessir stjórar gera sterkt tilkall en voru Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Magnús Haukur Harðarson sammála um að erfitt væri að horfa fram hjá Regis Le Bris sem kemur Sunderland í Evrópudeildina á fyrsta tímabili eftir að liðið komst upp úr Championship-deildinni. Mikel Arteta kom þar næstur eftir að hafa stýrt Arsenal til Englandsmeistaratitils.

Hægt er að hlusta á Enska boltann í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Enski boltinn - Verðlaun fyrir tímabilið
Slapp
banner
banner