Markaðurinn lokar klukkan 17:00
Þetta eru fordæmalausir tímar eins og margoft hefur verið sagt. Næstu leikjum hjá kvennaliðum Breiðabliks, Fylkis og KR hefur verið frestað eftir að Covid-smit komu upp hjá leikmönnum Blika og Fylkis.
Leikmannahópur KR er þá í sóttkví þar sem liðið spilaði gegn Breiðabliki í síðustu viku.
Leikmannahópur KR er þá í sóttkví þar sem liðið spilaði gegn Breiðabliki í síðustu viku.
Það eru því aðeins tveir leikir í þessari umferð í Draumaliðsdeild 50skills. Það eru engin stig í þessari umferð fyrir leikmenn þeirra sex liða sem eiga ekki leik í þessari umferð Draumaliðsdeildarinnar. Fordæmalausir tímar.
Markaðurinn lokar á eftir klukkan 17:00.
Smelltu hérna til að fara inn á síðu Draumaliðsdeildar 50skills.
Er kominn tími á að nota Wildcard?
Ein breyting er að venju leyfileg á milli umferða en hægt er að gera fleiri breytingar á liði sínu án þess að missa stig með því að nota „wildcard" sem nota má einu sinni yfir tímabilið.
þriðjudagur 30. júní
18:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
miðvikudagur 1. júlí
19:15 Stjarnan-Selfoss (Samsungvöllurinn)
Athugasemdir