Fotbolti.net
30.06.20 - 17:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bild: Sane frá City til Bayern er klárt

Leroy Sane.

Leroy Sane.

Canon

Mynd: Getty Images

Samkvæmt þýska blaðinu Bild er allt frágengið á milli Manchester City og Bayern Munchen um að þýski vængmaðurinn, Leroy Sane, muni skipta yfir í Bayern Munchen.

Búist er við því að félagaskiptin verði staðfest fljótlega. Sane er sagður skrifa undir fimm ára samning við Bayern og mun hann kosta á bilinu 45-55 milljónir punda.
Sane er 24 ára og hefur verið lengi frá vegna meiðsla. Hann er þó orðinn heill heilsu en Guardiola, stjóri City, hefur kosið að nota hann lítið í síðustu leikjum.

„Hann vill fara til annars félags. Ég veit ekki hvort hann fari í sumar eða næsta sumar þegar samningurinn rennur út," sagði Guardiola fyrir ekki svo löngu síðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.