Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 30. júní 2022 15:30
Elvar Geir Magnússon
Nagelsmann í ástarsambandi með blaðakonu
Mynd: EPA
Julian Nagelsmann, stjóri Bayern München, var myndaður af slúðurpressunni þar sem hann var á snekkju í Ibiza með íþróttablaðakonu Bild sem hann er að hitta.

Nagelsmann, sem er 34 ára, er skilinn við eiginkonu sína eftir fimmtán ára samband og er að hitta Lenu Wurzenberger, 30 ára gamla fjölmiðlakonu.

Bild segir að Lena verði tekin úr allri umfjöllun um Bayern München.

Á heimasíðu Telegraph má sjá myndir af Nagelsmann og Lenu í snekkjunni.

Í apríl stýrði Nagelsmann liði Bayern til þýska meistaratitilsins en það var fyrsti stóri titillinn á stjóraferli hans. Hjá Hoffenheim varð hann yngsti stjóri í sögu þýsku Bundesligunnar og tók síðan við RB Leipzig.


Athugasemdir
banner
banner
banner