Fotbolti.net
30.06.26 - 14:06
Elvar Geir Magnússon

Fjórir Þjóðverjar þorðu ekki að taka víti - Goretzka fær að heyra það

Jonathan Tah brást bogalistin.

Jonathan Tah brást bogalistin.

Canon

Mynd: EPA

Þýskaland féll úr leik þegar liðið tapaði gegn Paragvæ eftir vítakeppni í 32-liða úrslitum HM. Þetta var í fyrsta sinn sem Þýskaland tapar í vítakeppni á HM.

Þýskir fjölmiðlar fjalla um það að fjórir leikmenn liðsins hafi ekki þorað að taka spyrnu í vítakeppninni.

Í fyrstu umferð bráðabana var það varnarmaðurinn Jonathan Tah í Bayern München sem skaut yfir en hann hafði aldrei áður tekið vítaspyrnu í keppnisleik. Jose Canale skoraði úr næstu spyrnu Paragvæja og kom þeim áfram í 16-liða úrslitin.
Þýskir miðlar æfir eftir tapið - „Hnignun einu sinni frábærrar fótboltaþjóðar“
TENGT EFNI

Þýskir miðlar æfir eftir tapið - „Hnignun einu sinni frábærrar fótboltaþjóðar“

Bild segir að fjórir leikmenn Þýskalands hafi neitað að taka vítaspyrnu; Leon Goretzka, Waldemar Anton, Nathaniel Brown og Malick Thiaw.

Goretzka, sem er þrítugur miðjumaður, fær mikla gagnrýni fyrir að hafa neitað að taka víti, þar á meðal á samfélagsmiðlum.

Hann á 72 leiki fyrir Þýskaland og í sjónvarpsútsendingu sést þegar fyrirliðinn Joshua Kimmich biður hann í tvígang um að stíga á punktinn. Goretzka virðist hrista hausinn og Kimmich snýr sér þá að öðrum. Á endanum var það Tah sem steig fram en brást bogalistin.

Goretzka neitaði að taka víti.

Goretzka neitaði að taka víti.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.