Maður dagsins á HM - Sumarið hans Saibari

Ismael Saibari fagnaði innilega.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Ismael Saibari fagnaði innilega.

Mynd: EPA

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Ismael Saibari, sóknarmaður Marokkó, skaut sínum mönnum áfram á HM í nótt þegar hann skoraði úr síðustu spyrnunni í vítakeppninni gegn Hollandi í 32-liða úrslitum.
Þessi 25 ára sóknarleikmaður PSV Eindhoven hefur verið frábær á hemsmeistaramótinu er að öllum líkindum á leiðinni til Bayern München seinna í sumar en hann hefur náð munnlegu samkomulagi við Þýskalandsmeistarana.

TENGT EFNI
Sjáðu HM mörkin: Marokkó sendi Holland heim eftir vító
Saibari fæddist á Spáni og þegar hann var barn sást hann aldrei án fótboltans. Hann er einnig með belgískan ríkisborgararétt eftir að fjölskylda hans fluttist þangað þegar efnahagskrísa var á Spáni.
Hann fór í gegnum unglingastarf Anderlecht og Genk áður en hann gekk í raðir PSV árið 2020. Þar hefur hann orðið betri og betri og á síðasta tímabili var hann valinn leikmaður ársins í hollensku deildinni þegar hann hjálaði PSV að vinna Hollandsmeistaratitilinn.
Hann kom á flugi fullur sjálfstrausts inn í HM. Hann skoraði í 1-1 jafntefli gegn Brasilíu, sigurmarkið 1-0 gegn Skotlandi og í 4-2 sigrinum gegn Haítí. Í nótt skoraði hann svo úr úrslitaspyrnunni í vítakeppninni gegn Hollandi.