Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 30. júlí 2020 10:32
Magnús Már Einarsson
Tilboð Manchester City í Ake samþykkt
Mynd: Getty Images
Bournemouth hefur samþykkt 41 milljóna punda tilboð frá Manchester City í Nathan Ake.

Bournemouth féll úr ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi og þá varð ljóst að Ake myndi róa á önnur mið.

Hinn 25 ára gamli Ake kom til Bournemouth frá Chelsea árið 2017 en hann var áður á láni hjá félaginu.

Hollendingurinn hefur verið algjör lykilmaður hjá Bournemouth undanfarin ár og vakið áhuga hjá stærri félögum.

Manchester City virðist nú ætla að krækja í hann en Ake mun nú fara í samningaviðræður og læknisskoðun hjá félaginu.

Athugasemdir
banner