Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 30. júlí 2022 18:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einkunnir Liverpool og Man City: Nunez bestur - Haaland fær fimm
Mynd: EPA
Sky Sports gaf leikmönnum Liverpool og Manchester City einkunnir fyrir frammistuðu sína í leiknum um Samfélagsskjöldinn sem Liverpool vann 3-1.

Trent Alexander Arnold, Mohamed Salah og Darwin Nunez skoruðu mörk Liverpool. Julian Alvarez skoraði mark City.

Nunez var valinn maður leiksins með 8 í einkunn en hann kom inná af krafti snemma í síðari hálfleik og gulltryggði sigurinn í uppbótartíma. Salah skoraði af vítapunktinum og lagði upp markið fyrir Trent og þeir fengu einnig 8 í einkunn.

Carvalho og Jones spiluðu of stutt til að fá einkunn.

Haaland komst ekkert í takt við leikinn en hann fékk aðeins fimm en Cancelo og Grealish fengu fjóra. Alvarez stóð uppúr hjá City og fær sjö.

Liverpool: Adrian (7), Alexander-Arnold (8), Matip (7), Van Dijk (7), Robertson (7), Fabinho (6), Henderson (7), Thiago (7), Diaz (7), Salah (8), Firmino (6).

Varamenn: Nunez (8), Elliott (6), Milner (6), Carvalho (n/a), Jones (n/a).

Man City: Ederson (5), Walker (6), Dias (5), Ake (5), Cancelo (4), Rodrigo (6), Bernardo (6), De Bruyne (6), Mahrez (5), Haaland (5), Grealish (4).

Varamenn: Foden (6), Alvarez (7), Gundogan (6).


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner