Fotbolti.net
30.07.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gríðarlega sterk úrslit Vals sett í samhengi

Gríðarlega sterk úrslit Vals sett í samhengi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tryggði sér sæti í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir sigur í einvíginu gegn Zrinjski Mostar. Valur vann fyrri leikinn 1-0 og seinni leiknum lauk með 2-2 jafntefli ytra í kvöld. Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði öll mörk Vals.

Þessi sigur Valsmanna er virkilega sterkur en Zrinjski hefur náð frábærum árangri í Evrópu undanfarin ár.
Liðið komst í umspilið um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í fyrra þar sem liðið gerði jafntefli gegn Crystal Palace á heimavelli en tapaði á útivelli og Palace stóð uppi sem sigurvegari keppninnar að lokum.

Liðið vann AZ Alkmaar og gerði jafntefli gegn Aston Villa í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar tímabilið 2023/24. Liðið rúllaði yfir Breiðablik á heimavelli sínum 6-2 í forkeppni Evrópudeildarinnar það ár. Þá mættust liðin aftur í fyrra þar sem Zrinjski vann einvígið 3-2.

Zrinjski var með mikla yfirburði í leiknum í kvöld en liðið átti 32 skot að marki á móti fjórum skotum frá Val. Þá átti Zrinjski 12 skot á markið. Frederik Schram varði vítaspyrnu undir lokin sem innsiglaði sigur Vals í einvíginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.