Fotbolti.net
30.07.26 - 21:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Evrópa: Annar ævintýralegur sigur hjá Alex Frey og Sigga Ragga

Alex Freyr Elísson

Alex Freyr Elísson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var dramatík enn eina ferðina hjá færeyska liðinu NSÍ Runavík þegar liðið vann slóvenska liðið Koper í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.

Liðin mættust í Slóveníu en leiknum í Færeyjum lauk með 2-0 sigri Koper. Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari NSÍ en hann byrjaði með Alex Frey Elísson á bekknum.
Sjáðu atvikið stórfurðulega - Einn ótrúlegasti leikur sem Siggi Raggi hefur upplifað
TENGT EFNI

Sjáðu atvikið stórfurðulega - Einn ótrúlegasti leikur sem Siggi Raggi hefur upplifað

Staðan var 2-0 fyrir NSÍ eftir 90 mínútur og það þurfti því að framlengja. Alex Freyr kom inn á sem varamaður undir lok venjulegs leiktíma.

Koper minnkaði muninn í 2-1 og komst í 3-2 forystu í framlengingunni en NSÍ jafnaði einvígið með marki þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Þetta endaði því í vítaspyrnukeppni þar sem NSÍ vann 4-3 og Alex Freyr, Klæmint Olsen og Daniel Obbekjær, fyrrum leikmenn Breiðabliks, skoruðu úr sínum spyrnum fyrir NSÍ.

NSÍ vann einnig ævintýralegan sigur í síðustu umferð þegar liðið vann Hamrun samanlegt 3-2 með sigurmarki á fjórðu mínútu í uppbótatíma. NSÍ mætir Lugano frá Sviss í næstu umferð.

Gríska liðið Panathinaikos er komið áfram eftir 2-2 jafntefli gegn Paks frá Ungverjalandi. Liðið vann einvígið samanlagt 4-3. Sverrir Ingi Ingason er leikmaður Panathinaikos en hann sleit krossband fyrr í þessum mánuði.

Kristian Nökkvi Hlynsson og félagar í Twente eru á leið í forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir tap gegn Ferencvaros frá Ungverjalandi. Liðið tapaði fyrri leiknum 2-1 en gerði 2-2 jafntefli í kvöld. Kristian var tekinn af velli í hálfleik. Twente mætir Dunajská Streda frá Slóvakíu í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Koper 1 - 3 NSI Runavik (3-4 í vítaspyrnukeppni)
0-0 Leo Rimac ('25 , Misnotað víti)
0-1 Beinir Nolsoe ('35 )
0-2 Marius Kryger Lindh ('70 )
1-2 Bassirou N'Diaye ('102 , víti)
1-3 Michal Przybylski ('120 )

Panathinaikos 2 - 2 Paks (4-3 samanlagt)
0-1 Milan Peto ('35 )
1-1 Adriano Jagusic ('44 )
1-2 Milan Gyorfi ('57 )
2-2 Elmin Rastoder ('85 )

Ferencvaros 2 - 2 Twente (4-3 samanlagt)
1-0 Toon Raemaekers ('22 , víti)
2-0 Lenny Joseph ('50 )
2-1 Wout Weghorst ('82 )
2-2 Lucas Vennegoor of Hesselink ('86 )
Rautt spjald: Philippe Rommens, Ferencvaros (Hungary) ('36)
Kristian Nökkvi Hlynsson

Kristian Nökkvi Hlynsson

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.