Gústi Gylfa: Kannski sanngjörn niðurstaða
Auglýsing

Ágúst Gylfason þjálfari Gróttu

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Gróttumenn fengu Árbæingana úr Fylki í heimsókn þegar bæði þessi lið spiluðu sína 13.leiki í Pepsi Max deild karla núna í kvöld.
Fyrir leikinn var Grótta i slæmum málum í 11.sæti deildarinnar nú 5 stigum á eftir öruggu sæti eftir úrslit dagsins en það átti því miður ekki eftir að breytast fyrir Seltirningana í Gróttu en Fylkismenn höfðu betur í kvöld 2-0.

„Svekkjandi, vera á heimavelli og tapa 2-0, ná ekki einusinni að setja mark á andstæðinginn, fengum tækifæri til þess en mér fannst þeir skora frekar auðveld mörk á okkur og því fór sem fór, kannski sanngjörn niðurstaða." Sagði Ágúst Gylfason þjálfari Gróttu eftir leikinn í kvöld.
Staðan er fer að verða dekkri og dekkri hjá strákunum hans Gústa á Seltjarnarnesinu en hann vill þó ekki meina að andinn sé að fara úr liðinu þrátt fyrir allt mótlætið.
„Nei, ég held að motivation-ið verði bara meiri og meiri og menn verða að vera hungraðir í að fá sigur og við ætuðum okkur þrjú stig í dag, það var dagskipuninn en mig fannst við ekki eiga skilið að fá þrjú stig miðað við gæðin okkar og við þurfum klárlega að verða betri ef við ætlum að hanga í deildinni og eins og við vitum að þá er nóg eftir og við þurfum að halda áfram. Það kemur núna landsleikjapása sem er að öðrum toga en þessar pásur sem við höfum verið að fá núna í sumar sem eru dálítil óvissa og veit ekki hvort þú fáir að æfa eða hvernig það er og hvernig þú mátt æfa og núna fáum við eðlilega pásu þar sem við getum æft eins og menn og spilum æfingarleik eftir viku þannig það er kærkomið fyrir okkur að fá þetta og gera eitthvað saman sem hópur og stilla okkur saman fyrir átökin í haust."
Aðspurður um hvað það væri sem vantaði uppá til þess að taka næstu skref hafði Gústi þetta að segja.
„Heilt yfir bara gæði, gæði að halda boltanum betur og byggt upp betri sóknir og verjast eins og menn. Þetta er svolítið bara sitt af hvoru og ef við náum að bæta þessa hluti þá förum við út með kassan í þessa 9 leiki sem eftir eru."