Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 30. ágúst 2022 22:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Zaha pirraður: Veit ekki hvað ég á að segja
Mynd: Getty Images

Wilfried Zaha kom Crystal Palace yfir eftir klukkutíma leik gegn Brentford en Wissa jafnaði metin undir lok leiksins.


Zaha var ekki ánægður með það hvernig Palace liðið brást við eftir að hafa komist yfir.

„Ég veit ekki hvað ég á að segja, við missum einbeitingu í smá stund og það rústar allri vinnunni. Um leið og við komumst yfir fórum við bara að verjast," sagði Zaha.

„Ég skil það ekki, ef við hefðum bara haldið áfram að pressa finnst mér eins og vi ðhefðum skorað annað mark og klárað leikinn en við drápum okkur sjálfir í lokin."

Palace er með fimm stig eftir fimm leiki en liðið tapaði gegn Arsenal og Man City.


Athugasemdir
banner
banner
banner