Fotbolti.net
30.08.26 - 20:24
Magnús Atlason

Adam Páls opnaði markareikninginn: Ég skuldaði KA þetta

Auglýsing
Adam Páls opnaði markareikninginn: Ég skuldaði KA þetta
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fram og KA gerðu 2-2 jafntefli í kvöld. Adam Ægir Pálsson skoraði seinna mark KA og opnaði í leiðinni markareikninginn í Bestu deildinni hjá KA. Fótbolti.net náði tali af Adam eftir leik.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 2 KA
Svekktur að ná ekki þremur stigum en fyrirfram hafði maður kannski tekið eitt stig."

Adam skoraði sitt fyrsta mark í gulu treyjunni í leiknum. "Hvernig var tilfinningin að sjá boltann í netinu?"

"Úff hún var virkilega góð, ég var búinn að bíða lengi eftir þessu. Mér fannst ég vera búinn að eiga þetta inni, ég klúðraði dauðafæri á móti KR í seinasta leik og ég æfði virkilega vel í vikunni; tók yfir 100 skot í vikunni þannig að ég held að þetta hafi ekki getað komið á betri tíma.

"Ég var búinn að bíða eftir þessu lengi og ég skuldaði KA þetta."

"Megum við búast við fleiri mörkum núna eftir að stíflan hefur verið brotin?"

"Já vonandi þetta er víst þetta tómatsósu-effect, vonandi koma fleiri núna, það hlýtur að vera. Ég er ekki vanur að fara í gegnum fjóra fimm leiki án þess að skora þannig að nú hlaut að koma að þessu og vonandi er þetta fyrsta af mörgum."

Horfðu á viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.