30.08.26 - 18:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Kristófer bjargaði stigi með glæsilegu marki - Mikilvægur sigur FH

Kristófer Konráðsson skoraði glæsilegt mark

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gils átti frábæran leik í mikilvægum sigri FH

Fram og KA skildu jöfn á Lambhagavellinum í hörkuleik. KA komst yfir þegar Hallgrímur Mar Steingrímsson sendi á Guðjón Erni Hrafnkelsson sem skoraði með skoti framhjá Viktori Frey Sigurðssyni.
KA varð fyrir áfalli stuttu síðar þegar Jakob Snær Árnason og Kári Gautason þurftu báðir að fara af velli vegna meiðsla.

Kyle McLagan jafnaði metin þegar hann skallaði boltann í netið eftir langt innkast frá Kennie Chopart.
Adam Pálsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir KA og kom liðinu yfir snemma í seinni hálfleik. Hann slapp einn í gegn og renndi boltanum milli fóta Viktors.
Framarar sóttu hart að KA og tókst að jafna metin með stórkostlegu marki. Kristófer Konráðsson skoraði með föstu skoti fyrir utan teiginn í slána og inn.
Ægir Jarl Jónasson fékk dauðafæri til að koma Fram yfir undir lokin en skotið framhjá.
Það var darraðadans inn á teig KA í blálokin en Ívar Arnbro Þórhallsson handsamaði boltann og það var flautað til leiksloka í kjölfarið. KA er því enn á botninum með 17 stig en Fram er í 2. sæti með 44 stig.
Stefan Ljubicic kom Keflvíkingum yfir með hnitmiðuðu skoti rétt fyrir utan teiginn. FH jafnaði stuttu síðar þegar Gils Gíslason skoraði með föstu skoti.
Erlingur Agnarsson var nálægt því að koma FH-ingum yfir undir lok fyrri hálfleiks en skotið rétt yfir.
FH náði forystunni snemma í seinni hálfleik þegar Kjartan Kári Halldórsson skoraði með skalla eftir sendingu frá Gils. Guðmundur Andri Tryggvason var nálægt því að bæta við marki fyrir FH en Ásgeir Orri Magnússon varði vel frá honum.
Mate Simicic fékk síðasta tækifæri Keflvíkinga en skotið hátt yfir markið og gríðarlega mikilvægur sigur FH-inga staðreynd. FH er í 9. sæti með 21 stig en Keflavík í 5. sæti með 28 stig.
FH 2 - 1 Keflavík
0-1 Stefan Alexander Ljubicic ('23 )
1-1 Gils Gíslason ('27 )
2-1 Kjartan Kári Halldórsson ('52 )
Lestu um leikinn
Fram 2 - 2 KA
0-1 Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('14 )
1-1 Kyle Douglas Mc Lagan ('33 )
1-2 Adam Ægir Pálsson ('50 )
2-2 Kristófer Konráðsson ('80 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 20 | +14 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | Þór | 21 | -29 | 18 |
| 11 | ÍBV | 21 | -13 | 17 |
| 12 | KA | 20 | -14 | 16 |