30.08.26 - 15:13
Brynjar Ingi Erluson
Besta deild kvenna: FH tapaði dýrmætum stigum í titilbaráttunni

Lillý Rut bjargaði stigi fyrir Val í blálokin

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur 2 - 2 FH
0-1 Helena Maree Errington ('12 )
1-1 Sóley Edda Ingadóttir ('14 )
1-2 Birna Kristín Björnsdóttir ('15 )
2-2 Lillý Rut Hlynsdóttir ('93 )
Rautt spjald: Hilmar Andrew McShane, Valur ('82) Lestu um leikinn

FH tapaði dýrmætum stigum í titilbaráttunni í Bestu deild kvenna þegar Valur jafnaði undir lok leiks í 2-2 jafntefli liðanna á Hlíðarenda í dag.
Gestirnir úr Hafnarfirði byrjuðu af miklum krafti. Ingibjörg Magnúsdóttir þræddi boltann inn fyrir vörn Vals á Helenu Maree Errington sem lék fram hjá Tinnu Brá Magnúsdóttur í markinu og skoraði.
Vörn Vals var illa á verði en heimakonur voru aðeins tvær mínútur að svara. Þær fengu hornspyrnu eftir að hafa farið illa með dauðafæri og Sóley Edda Ingadóttir lét vaða beint á markið. Boltinn söng í netinu og alvöru Ólympíumark staðreynd.
Markaregninu var þó ekki lokið því FH komst aftur yfir nánast um leið. Helena fékk boltann rétt utan vítateigs, tók tvöföld skæri og renndi honum á Birnu Kristínu Björnsdóttur sem lét vaða í fjærhornið fram hjá hreyfingarlausri Tinnu.
Færin féllu á báða bóga í síðari hálfleik. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir átti skot í slána fyrir Val og Emma Hawkins fór illa með algert dauðafæri. Hinum megin þrumaði Helena aukaspyrnu í slána.
Annað mark lá í loftinu og það kom Valsmegin þegar skammt var eftir. Eftir innkast fékk Hawkins boltann, sneri af sér varnarmann og sendi á Sonju. Skot hennar fór af varnarmanni og þaðan til Lillýjar Rutar Hlynsdóttur sem klíndi boltanum í fjærhornið.
Valur nældi þar í gríðarlega mikilvægt stig í fallbaráttunni en niðurstaðan er grátleg fyrir FH sem kastaði frá sér tveimur stigum í titilbaráttunni. Valur er á botninum með 17 stig en FH í öðru sæti með 34 stig, tveimur stigum frá toppnum þegar ein umferð er eftir fyrir tvískiptingu deildarinnar.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 17 | +25 | 36 |
| 2 | FH | 17 | +23 | 34 |
| 3 | ÍBV | 17 | -2 | 27 |
| 4 | Stjarnan | 17 | +5 | 26 |
| 5 | Þróttur R. | 17 | -3 | 22 |
| 6 | Grindavík/Njarðvík | 17 | -5 | 22 |
| 7 | Þór/KA | 17 | -3 | 19 |
| 8 | Fram | 17 | -16 | 19 |
| 9 | Víkingur R. | 17 | -12 | 17 |
| 10 | Valur | 17 | -12 | 17 |