Fotbolti.net
30.08.26 - 22:42
Sölvi Haraldsson

Brazell svekktur: Hefðum átt að fá þrjú stig í kvöld

Auglýsing
Brazell svekktur: Hefðum átt að fá þrjú stig í kvöld
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta eru vonbrigði, en þessi vonbrigði eru þessar 10 sekúndur undir lok leiks. Ég er ekki heimskur og segi að við hefðum átt að fá þrjú stig úr þessum leik í kvöld. Það er bara byggt á þeim færum sem við fengum í dag.“ sagði Chris Brazell, þjálfari Vals, eftir 2-2 jafntefli gegn Skaganum á Hlíðarenda.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 2 ÍA
„Ég er ánægður með liðsframmistöðuna í dag. Við erum í erfiðri stöðu og þegar þú skoðar stöðuna á liðinu, við höfum þurft að gera breytingar og misst leikmenn í meiðsli. Strákarnir halda áfram og koma til baka þrátt fyrir að lenda 1-0 undir eins og í dag, kredit á þá fyrir það. Ég er mjög heppinn að vera með þennan hóp sem gefa sig alla fram og skilja allt eftir á vellinum. Blendnar tilfinningar eftir leik.“

Valsmenn fengu helling af tækifærum til að skora en skoruðu kannski úr tveimur erfiðustu færum leiksins sem þeir fengu.

„Við eigum ekki að þurfa að skora fimm mörk til að vinna leiki. Við komum okkur í frábæra stöðu en klúðruðum því í uppsetningunni okkar í hornspyrnunni, við klúðruðum því líka í aðdragandanum að henni. Við getum verið hreinskilnir við hvorn annan í klefanum eftir leik með það. Strákarnir klúðruðu ekkert endilega þessum færum. Skagamennirnir vörðust vel og gerðu okkur erfitt fyrir. Það sem við gerðum vel í kvöld er að við héldum áfram og áfram og áfram og fengum það sem við áttum skilið en kannski ekki alveg það sem við vildum.“

Emil, markmannsþjálfari Vals, trylltist rétt áður en Skaginn jafnaði leikinn og fékk beint rautt spjald. Hvernig fannst Chris dómgæslan í leiknum?

„Ef ég fer að tala um dómarann mun það líta út eins og ég sé með afsakanir eftir afsakanir sem ég er ekki með. Ástæðan afhverju við gerðum jafntefli var ekki útaf dómaranum. Þetta velti á þessari hornspyrnu undir lokin, sama hvort þetta átti að vera horn eða ekki, við eigum að geta varist hornum. Við þurfum að sleikja sárin okkar og halda áfram.“

Viðtalið við Chris í heildina má finna í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.