30.08.26 - 11:12
Brynjar Ingi Erluson
Everton hættir við að selja Armstrong - Grealish og Tete færast nær félaginu

Harrison Armstrong verður áfram hjá uppeldisfélaginu

Mynd: Everton

Grealish vill fara aftur til Everton

Mynd: EPA

Eigendur enska úrvalsdeildarfélagsins Everton hafa ákveðið að selja ekki enska miðjumanninn Harrison Armstrong í þessum glugga. Þá er félagið nálægt samkomulagi um að fá Jack Grealish og Kenny Tete.

TENGT EFNI
Reiði meðal stuðningsmanna Everton
Athletic greindi frá því í gær að Nottingham Forest væri í viðræðum við Everton um hinn 19 ára gamla Harrison Armstrong.
Rætt var um kaupverð upp á 40 milljónir punda auk þess sem Everton myndi fá hlutdeild í næstu sölu. Viðræðurnar voru komnar langt á veg en fregnirnar vöktu mikla reiði meðal stuðningsmanna Everton enda Armstrong talinn einn efnilegasti leikmaður Englands.
Í kjölfarið ákváðu eigendur Everton að slíta viðræðunum. Félagið lítur á Armstrong sem mikilvægan hluta af framtíðinni og telur stöðu hans sem uppalins leikmanns gera hann enn verðmætari.
Grealish velur Everton og viðræður hafnar um Tete
Everton vinnur jafnframt að því að fá Jack Grealish aftur á láni frá Manchester City og eru þær viðræður langt komnar. Grealish lék sem lánsmaður hjá Everton á síðustu leiktíð og gerði frábæra hluti áður en meiðsli settu strik í reikninginn.
Englendingurinn vill sjálfur snúa aftur og er búist við að gengið verði frá samkomulagi á næstu dögum.
Everton hefur einnig hafið viðræður við Fulham um hollenska hægri bakvörðinn Kenny Tete. Tete, sem er þrítugur, kom að tveimur mörkum í 3-0 sigri Fulham gegn Wimbledon í enska deildabikarnum í vikunni.
Hann er á sínu sjötta tímabili hjá Fulham og hefur leikið 144 leiki fyrir félagið og skorað fimm mörk. Félagaskiptin ganga þó líklega ekki í gegn fyrr en Fulham hefur fundið nýjan hægri bakvörð í hans stað.