Fotbolti.net
30.09.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Enginn það vitlaus að halda það að þetta hafi bara verið flott og fínt"

Chris Brazell og Gareth Owen.

Chris Brazell og Gareth Owen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í síðustu viku var greint frá því að Gareth Owen væri ekki lengur yfirmaður fótboltamála hjá Val. Owen var ráðinn til Vals síðasta vetur en þetta hefur verið erfitt tímabil fyrir Hlíðarendafélagið. Karlaliðið endaði í neðra umspilinu og kvennaliðið situr í neðsta sæti Bestu deildarinnar.

Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag var rætt um þessar fréttir og hvað þýðingu þær hafa, en það eru breytingar framundan hjá Val eftir tímabilið. Halldór Árnason tekur við þjálfun karlaliðsins. Chris Brazell, sem var aðstoðarþjálfari Hermanns Hreiðarssonar áður en Hermann var rekinn, stýrir liðinu til bráðabirgða út tímabilið, en hann mun að öllum líkindum kveðja félagið að því loknu líkt og Owen.
Gareth Owen hættur hjá Val (Staðfest)
TENGT EFNI

Gareth Owen hættur hjá Val (Staðfest)

„Það var engin haka í gólf sem kom á skrifstofu Fótbolta.net," sagði Elvar Geir Magnússon en Fótbolti.net hafði fjallað um það fyrir tilkynninguna að það stefndi í þetta.

„Það er augljóst að þessi tilraun, hugmyndir og þessi leið sem Valur ætlaði að fara, hún misheppnaðist," bætti Elvar við en talsverðar breytingar voru gerðar hjá Val fyrir tímabilið.

„Hann tók við fyrir tíu mánuðum, núna er Valur karla í áttunda sæti og Valur kvenna er í botnbaráttu. Hann féll gjörsamlega á prófinu."

„Það fer svolítið í taugarnar á mér að mér finnst skorta auðmýkt hjá Val eins og í þessari tilkynningu. Það er látið líta út eins og hann hafi komið þarna og gert sitt, þeir séu ánægðir með hans störf og þakka honum fyrir. Í stað þess að segja bara að þetta heppnaðist ekki, Gareth Owen er farinn og áfram gakk. 'Við höldum áfram, metnaður okkar er mikill og allt það'."

Það er augljóst að þessi tilraun hjá Val hafi misheppnast. „Það er enginn það vitlaus að halda það að þetta hafi bara verið flott og fínt," sagði Elvar. „Hann er farinn áður en tímabilið er búið."

„Það er spurning hvað verður um þessa stefnubreytingu sem var ítrekað talað um fyrir mót. Hvað verður um hana þegar Dóri tekur við?" spurði Kári Snorrason.

„Að mínu mati er það frábær ráðning hjá Val að fá Dóra inn, en sýnið auðmýkt. Þetta var líka svona þegar Hermann Hreiðarsson var rekinn. Þá sagði Styrmir formaður við Vísi að það hefðu ekki verið mistök að ráða hann," sagði Elvar.

„Hann var rekinn eftir hvað sjö umferðir. Þetta voru stjörnubiluð ummæli," sagði Kári.

„Menn verða líka að vera með auðmýkt og viðurkenna þegar hlutirnir ganga ekki upp. Það er algengt í fótbolta að hlutirnir ganga ekki upp," sagði Elvar.

Þetta hefur ekki verið gott sumar fyrir Val.

Þetta hefur ekki verið gott sumar fyrir Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá Hlíaðarenda.

Frá Hlíaðarenda.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Árnason tekur við karlaliði Vals fyrir næsta tímabil.

Halldór Árnason tekur við karlaliði Vals fyrir næsta tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Útvarpsþátturinn - Maggi.net og martröð Man City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.