Fotbolti.net
30.09.26 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson

Lærisveinn Fabregas líklegur til að taka 'tíuna' af Messi

Nico Paz er líklegastur til að taka við 'tíunni'

Nico Paz er líklegastur til að taka við 'tíunni'

Canon

Mynd: EPA

Argentínski sóknartengiliðurinn Nico Paz er talinn líklegastur til að taka við treyju númer 10 af Lionel Messi þegar hann leggur landsliðsskóna formlega á hilluna þann 6. október.
Fá ekki að kveðja Messi
TENGT EFNI

Fá ekki að kveðja Messi

Messi skrifaði sig rækilega á spjöld sögunnar með argentínska landsliðinu, komst þrisvar í úrslit heimsmeistaramótsins og varð heimsmeistari í Katar árið 2022.

Hann er einn besti leikmaður í sögu þjóðarinnar. Í Argentínu eru tveir guðir í fótboltanum, Diego Armando Maradona og Messi. Maradona er enn sá stærsti í augum margra af eldri kynslóðinni, en sífellt fleiri líta á þá sem jafningja.

Báðir klæddust treyju númer 10 og nú er komið að því að einhver annar taki við kyndlinum. Messi spilar kveðjuleik sinn gegn Benín eftir nokkra daga og í kjölfarið losnar tían.

Samkvæmt argentínskum miðlum er Paz, sem leikur með Como á Ítalíu, talinn líklegasti arftakinn. Hann er gríðarlega efnilegur leikmaður og talinn ein af næstu stóru stjörnum Argentínu.

Maradona var sá sem afhenti Messi tíuna fyrir HM 2010, en áður höfðu Juan Roman Riquelme og Ariel Ortega meðal annars klæðst henni.

Mikil ábyrgð bíður Paz ef þessar fregnir reynast réttar, en væntanlega skýrist málið betur í nóvember þegar næsta landsliðsverkefni Argentínu fer fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.