30.09.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Trent sneri aftur hjá Englendingum - „Vonandi var Tuchel ánægður með þetta“

Trent í leiknum í gær

Mynd: EPA

Trent vonar að Tuchel hafi verið ánægður með frammistöðuna

Mynd: EPA

Trent í leiknum í gær

Mynd: EPA
Trent Alexander-Arnold sneri aftur í byrjunarlið Englendinga í fyrsta sinn í tvö ár í 2-0 sigrinum á Tékklandi í Þjóðadeildinni í gær.

TENGT EFNI
Tuchel: Nú er ég kominn með samviskubit yfir því
Hægri bakvörðurinn fór ekki með Englendingum á HM í sumar og kom sú ákvörðun mörgum á óvart.
Thomas Tuchel ákvað hins vegar að velja hann í þetta verkefni og gaf honum tækifæri í byrjunarliðinu í gær.
„Mér fannst þetta gott. Þeir spiluðu með tíu menn og það setti meiri pressu á okkur að vinna leikinn, en í raun gerði það verkefnið erfiðara því þeir urðu þéttari og varnarsinnaðri. Það var mjög erfitt að brjóta þá niður, en okkur tókst það snemma í síðari hálfleik og það var nákvæmlega það sem við þurftum,“ sagði Alexander-Arnold.
Madrídingurinn þakkaði traustið með glæsilegri fyrirgjöf á Anthony Gordon sem skoraði fyrra mark Englendinga.
„Ég talaði við Gordon í fyrri hálfleiknum og sagði honum að ef ég fengi þetta pláss þá ætti hann að fara á fjærstöngina. Ég bjóst ekki við að fá þetta pláss svona fljótlega eftir það, en það kom og þetta virkaði.“
„Það er mikill heiður og frábært að spila með honum. Ég reyndi bara að fá boltann og finna bestu leiðina til að koma honum áfram og skapa færi. Það skilaði mér þessari stoðsendingu.“
Alexander-Arnold talaði einnig um hversu mikill heiður það væri að spila fyrir England og vonast til að Tuchel hafi verið sáttur við framlag hans.
„Ég vil bara ítreka að það er mikill heiður að fá að spila fyrir þjóð mína. Ég hef alltaf viljað spila fyrir England og alltaf haft trú á því að ég gæti gert það, en ég þurfti að sanna mig hjá félagsliðinu til að fá þetta tækifæri. Þjálfarinn gaf mér það og vonandi er hann ánægður með frammistöðuna,“ sagði Alexander-Arnold.