Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. október 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Klopp: Munurinn á Trent gæti ekki verið meiri
Mynd: Getty Images
„Þetta hefur verið frábært hingað til og áhugavert ferðalag," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, um bakvörðinn Trent Alexander-Arnold í dag.

Trent mun líklega byrja sinn hundraðasta leik í ensku úrvalsdeildinni þegar Liverpool mætir West Ham á morgun. Trent er 22 ára gamall en hann spilaði sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir þremur árum.

„Þegar þú sérð myndir úr fyrsta leik hans, strákurinn sem hann er þá samanborið við manninn sem hann er í dag. Þó að hann sé ennþá ungur þá gæti munurinn ekki verið meiri," sagði Klopp.

„Þegar þú horfir á aldur hans þá er ljóst að það er ennþá mikið pláss fyrir bætingar og hann mun nýta það."

„Það er mjög gaman að vera hluti af þessu ferðalagi því að öllum dreymir um það. Þegar þú ert hluti af því þá er það sérstakt."

Athugasemdir
banner
banner
banner