Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 30. október 2020 22:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kolbeinn lagði upp og Patrik hélt hreinu - Böddi skoraði sjálfsmark
Patrik Sigurður Gunnarsson.
Patrik Sigurður Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lommel vann gegn Lierse í belgísku B-deildinni í kvöld, leikar enduðu 1-3 fyrir Lommel. Kolbeinn Þórðarson er leikmaður Lommel og lék hann allan leikinn hjá gestunum.

Kolbeinn lék í hægri bakverðinum í dag þar sem báðir bakverðir liðsins eru í sóttkvi. Hann lagði upp annað mark liðsins fyrir Marlos Moreno. Lommel er með ellefu stig í 4. sæti deildarinnar eftir að hafa leikið níu leiki. Lommel er eina liðið sem hefur leikið níu, önnur lið hafa leikið færri leiki.

Í dönsku B-deildinni varði Patrik Sigurður Gunnarsson mark Viborg í 3-0 sigri á Helsingor. Viborg er með sigrinum sjö stigum á undan Fredericia sem situr í 2. sætinu.

Í Póllandi var Böðvar Böðvarsson í liði Jagiellonia og lék allan leikinn í vinstri vængbakverði samkvæmt uppstillingu FlashScore. Böðvar varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í 3-0 tapi á útivelli. Jagiellonia er í 8. sæti með ellefu stig eftir átta leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner