Fotbolti.net
30.10.25 - 15:15
Kári Snorrason
Skrifar frá: Viðtal

Gert grín að viðskilnaði Sigurðar á lokahófinu - „Þeir mega eiga þetta við sig“

Sigurður Egill er leikjahæsti leikmaður Vals í efstu deild.

Sigurður Egill er leikjahæsti leikmaður Vals í efstu deild.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Egill Lárusson segist eðlilega svekktur yfir misheppnuðu gríni sem gert var um viðskilnað hans við Val á lokahófi félagsins um síðustu helgi. Hann segir þó að málið sé að baki og að hann hafi ákveðið að loka þessum kafla.

Mikið umtal hefur verið síðustu vikur vegna ósætti Sigurðar um hvernig staðið var að viðskilnaði hans við Val, en hann fékk skilaboð á Messenger þar sem honum var tilkynnt að hann fengi ekki áframhaldandi samning.

Eftir að hann sagði frá málinu í viðtali gaf stjórn Vals út afar misheppnaða yfirlýsingu sem vakti mikla gagnrýni og baðst félagið síðar afsökunar.

Fótbolti.net ræddi við Sigurð um atvik á lokahófi Vals, sem hann mætti á, þar sem mislukkuð tilraun til gríns var gerð um viðskilnað hans við félagið.

Siggi Lár ósáttur við viðskilnaðinn: Ég er búinn að reyna að tala við stjórn Vals í allt sumar
TENGT EFNI

Siggi Lár ósáttur við viðskilnaðinn: Ég er búinn að reyna að tala við stjórn Vals í allt sumar

„Þetta var sagt í einhverju gríni þegar það var eitthvað raul á lokahófinu. En ég heyrði eitthvað af þessu, en þetta stuðar mig ekkert. Ég er alveg búinn að loka fyrir þetta mál. Ég heyrði af þessu, en það er ekkert meira en það, þeir meiga eiga þetta við sig.“ 

„Ég er búinn að segja allt sem ég þarf að segja um þetta mál. Auðvitað var ég svekktur með þá, en þetta er bara búið og ég set þetta á bakvið mig.

Spilaði ekki lokaleikinn

Sigurður Egill Lárusson ákvað að spila ekki með Val í síðasta leik tímabilsins gegn Víkingi eftir að málið náði hámæli.

„Ég settist niður með Birni (Steinari Jónssyni, formanni knattspyrnudeildar Vals) og ákvað eftir allt sem á undan hefði gengið þá vildi ég ekki spila og treysti mér ekki alveg til þess eftir að hvernig þeir komu fram við mig. Ég vildi ekki spila.“ 

Sigurður Egill er 33 ára og hefur síðustu ár leikið sem vinstri bakvörður. Hann var í herbúðum Vals í 13 ár og er sá leikmaður sem hefur spilað flesta leiki fyrir félagið í efstu deild. Hann er nú samningslaus og segist ætla að skoða sín mál á næstu vikum.

„Auðvitað var ég svekktur með þá, en þetta er bara búið og ég set þetta á bakvið mig.“

„Auðvitað var ég svekktur með þá, en þetta er bara búið og ég set þetta á bakvið mig.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.