Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 30. nóvember 2019 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu magnaða tæklingu Vertonghen á ögurstundu
Jan Vertonghen.
Jan Vertonghen.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Jan Vertonghen sá til þess að Tottenham tók stigin þrjú gegn Bournemouth.

Tottenham komst í 3-0 með tveimur mörkum frá Dele Alli og einu marki frá Moussa Sissoko.

Harry Wilson kom hins vegar Bournemouth aftur inn í leikinn á 73. mínútu þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu. Hann minnkaði svo muninn enn frekar á 96. mínútu.

Uppbótartíminn var sex mínútur, en Bournemouth fékk eitt tækifæri til viðbótar til að jafna. Callum Wilson var þá að komast í álitlegt færi, en Vertonghen kom til bjargar með magnaðari tæklingu.

Tæklinguna má sjá hérna.
Athugasemdir
banner
banner