Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 31. janúar 2020 23:11
Ívan Guðjón Baldursson
Glugginn er lokaður - Enn tími fyrir Ighalo og Bowen
Mynd: Getty Images
Félagaskiptaglugginn í janúar er búinn að loka í öllum helstu deildum Evrópu en félög hafa enn tæplega tvo tíma til að ganga frá síðustu félagaskiptunum.

Glugginn lokaði klukkan 23:00 á Englandi en félög hafa tíma til 01:00 til að senda gögn til FIFA, svo fremi sem umræddur leikmaður hafi skrifað undir samning fyrir klukkan 23:00.

Félagaskipti Odion Ighalo til Manchester United geta því enn gengið í gegn. Allir stærstu fjölmiðlar á Englandi eru sammála um að nígeríski sóknarmaðurinn sé á leið til Rauðu djöflanna.

Þá er West Ham að ganga frá kaupum á Jarrod Bowen frá Hull City, sem kostar 20 milljónir punda.
Athugasemdir
banner