Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 31. janúar 2020 22:53
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarnafæðismót kvenna: Völsungur lagði Hamrana
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Völsungur 2 - 0 Hamrarnir
1-0 Jóna Björg Jónsdóttir ('89)
2-0 Krista Eik Harðardóttir ('92)

Völsungur og Hamrarnir áttust við í hörkuleik í kvennahluta Kjarnafæðismótsins í kvöld.

Hart var barist enda liðin að berjast um annað sæti deildarinnar eftir óumdeildu toppliði Þór/KA.

Baráttan var mikil og vildi knötturinn ekki enda í netinu fyrr en á lokamínútunum.

Jóna Björg Jónsdóttir skoraði þá fyrir Völsung á 89. mínútu, skömmu áður en Krista Eik Harðardóttir gerði út um leikinn með marki í uppbótartíma.

Lokatölur því 2-0 Völsungi í hag og er liðið með sex stig eftir þrjár umferðir. Hamrarnir eru með sex stig eftir fjóra leiki.
Athugasemdir
banner
banner