Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 31. janúar 2023 10:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Olympiakos að fá Canos frá Brentford
Mynd: Getty Images
Sergi Canos er í læknisskoðun hjá grísku meisturunum í Olympiakos. Canos er 25 ára Spánverji sem hefur verið í sex ár hjá Brentford.

Hann hefur verið í litlu hlutverki á tímabilinu, einungis spilað 83 mínútur fyrir Brentford.

Hann fer til Grikklands á láni út tímabilið. Samningur hans við Brentford rennur út í sumar en félagið getur framlengt samninginn um ár til viðbótar.

Canos er uppalinn hjá Barcelona en fór til Liverpool þegar hann var sextán ára gamall. Í kjölfarið fór hann svo til Norwich og svo til Brentford.
Athugasemdir
banner
banner
banner