Kamaldeen Sulemana er búinn að velja Southampton sem næsta áfangastað sinn á ferlinum. Ef Southampton nær samkomulagi við Rennes verður gengið frá kaupum á leikmanninum fyrir gluggalok.
Sulemana var einnig orðaður við Everton en hann vill fara til Southampton.
Sulemana var einnig orðaður við Everton en hann vill fara til Southampton.
Sulemana er tvítugur Ganverji sem kom til Rennes frá Nordsjælland fyrir einu og hálfu ári síðan.
Rennes greiddi sautján milljónir evra fyrir leikmanninn en er nú að selja hann á um 25 milljónir evra.
Athugasemdir