Mason Mount hefur átt frábært tímabil með Chelsea og framfarir hans hafa ekki farið framhjá Lionel Messi.
„Ég hef fylgst með honum spila og tel að hann eigi möguleika á að verða einn sá besti," segir Messi, sem að margra mati er besti fótboltamaður sögunnar.
„Ég hef fylgst með honum spila og tel að hann eigi möguleika á að verða einn sá besti," segir Messi, sem að margra mati er besti fótboltamaður sögunnar.
Mount. sem er 21 árs, var á leið að verða valinn í EM hóp Englands áður en mótinu var frestað um tólf mánuði.
Þessi snjalli miðjumaður lék vel undir stjórn Frank Lampard á lánssamningi hjá Derby á síðasta tímabili og Lampard gaf honum síðan traustið á Stamford Bridge.
Athugasemdir