Fotbolti.net
31.03.26 - 15:34
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Toronto

Byrjunarlið Íslands - Tíu breytingar: Orri á bekknum en Gylfi og Aron byrja

Aron Einar er með fyrirliðabandið. Arnór og Gylfi byrja líka.

Aron Einar er með fyrirliðabandið. Arnór og Gylfi byrja líka.

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Í dag leikur íslenska landsliðið gegn Haítí í seinni vináttulandsleik gluggans. Leikurinn hefst 16:30 að íslenskum tíma og verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Eins og við var búist gerir Arnar Gunnlaugsson talsverðar breytingar á byrjunarliði sínu frá 2-2 jafntefli gegn Kanada. Eins og fjallað var um í gær þá var orðrómur um að Hákon Arnar Haraldsson og Orri Steinn Óskarsson yrðu hvíldir og eru þeir báðir á varamannabekknum.

Alls eru tíu breytingar á byrjunarliði íslenska landsliðsins frá leiknum gegn Kanada. Aron Einar Gunnarsson er með fyrirliðabandið og Gylfi Þór Sigurðsson byrjar einnig.

Það er aðeins Kristian Hlynsson sem byrjar báða leikina.
Lestu um leikinn: Haítí 1 - 1 Ísland
Leikurinn verður klukkan 12:30 að staðartíma á virkum degi og var miðasalan var það dræm að ekki var talið að það stæði undir kostnaði að selja inn á leikinn. Því var ákveðið að leikurinn verður áhorfendalaus.

Byrjunarlið Haítí

Alexandre Pierre, Ricardo Adé, Hannes Delcroix, Martin Expérience, Duckens Nazon, Jean-Ricner Bellegarde, Louicius Don Deedson, Leverton Pierre, Ruben Providence, Wilson Isidor, Jean-Kévin Duverne

Byrjunarlið Ísland

Hákon Rafn Valdimarsson, Logi Tómasson, Hjörtur Hermannsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Dagur Dan Þórhallsson, Kristall Máni Ingason, Stefán Teitur Þórðarson, Aron Einar Gunnarsson, Mikael Anderson, Kristian Hlynsson, Arnór Sigurðsson

Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga

Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.