Arnar Halls: Undir lokin hékk þetta á lyginni
Auglýsing

Arnar Hallsson þjálfari Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Hallsson þjálfari Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding fór í Grafarvoginn í kvöld og mætti toppliði Fjölnis í 15.umferð Inkasso deildar karla. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli. Afturelding varðist af krafti í seinni hálfleik eftir að hafa leitt í leikhléi 0-1. Arnar Hallsson þjálfari Aftureldingar var ágætlega sáttur með stigið í leikslok.
„Já mér fannst við vera búnir að leggja mjög hart að okkur. Mér fannst við stýra fyrri hálfleiknum mjög vel. Þeir höfðu engar hugmyndir um hvernig þeir ættu að brjóta okkur niður. Við vissum nákvæmlega hvað við þyrftum að gera í seinni hálfleiknum til að vinna leikinn. En því miður skorti okkur orku til að halda línunni hærra. Til að halda þeim lengra frá okkur þegar þeir byrjuðu að dæla inn í boxið. Á endanum hrökk þetta svona. Þegar þetta er svona, þegar það er dælt svona mikið inn í boxið og mikið af 50/50 boltum inn í teig að þá er erfitt að veðja á hvað gerist. Við erum ekkert sérstaklega hrifnir af þessari stöðu og það kostaði okkur í lokin" Sagði Arnar.

Arnar er bjartsýnn á framhaldið og segir frammistöðuna jákvæða að mörgu leyti „Já ég er búinn að segja það í allt sumar að við erum með gott fótboltalið. Strákarnir leggja hart að sér og þora að spila. Við erum hér í kvöld með stráka sem fæstir eiga leiki í þessari deild fyrir þetta tímabil. Þeir spila á móti mönnum sem eiga fullt af leikjum í efstu deild, reyndum leikmönnum. Þeir stóðust þeim fyllilega snúninginn stóran hluta leiksins. En ég get ekkert neitað því að í lokin hékk þetta á lyginni en maður var að vona að það myndi duga aðeins lengur" Sagði Arnar.
Nánar er rætt við Arnar í viðtalinu hér fyrir ofan.
Nánar er rætt við Arnar í viðtalinu hér fyrir ofan.