Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 31. júlí 2020 17:00
Hafliði Breiðfjörð
Sveindís Jane best í fyrsta þriðjungi
Sveindís Jane setti upp Bose gleraugun eftir að hún var valin leikmaður fyrsta þriðjungs.
Sveindís Jane setti upp Bose gleraugun eftir að hún var valin leikmaður fyrsta þriðjungs.
Mynd: Fótbolti.net - Mist Rúnarsdóttir
Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Breiðabliks, var valinn leikmaður fyrsta þriðjungs í Pepsi Max-deild kvenna. Heimavöllurinn tilnefndi fjóra leikmenn í valinu og Sveindís fékk 42,9% atkvæða.

Sveindís fékk Bose Frames Alto M/L - Sólgleraugu með innbyggðum bluetooth hátalara í verðlaun frá Origo.

Sveindís Jane er lánsmaður í Breiðabliki frá Keflavík. Eftir að Keflavík féll niður í Lengjudeildina síðasta haust var ljóst að hún vildi spila áfram í Pepsi Max-deildinni og að lokum var hún lánuð út þessa leiktíð til Breiðabliks.

Hún var allt í öllu í stórleik tímabils gegn Val í síðustu viku og skoraði fyrstu þrjú mörkin í 4 - 0 sigri. Hún hefur skorað 6 mörk í fyrstu 7 leikjum deildarinnar í sumar.


Athugasemdir
banner
banner