Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 31. júlí 2021 05:55
Victor Pálsson
Ísland í dag - Afturelding mætir til Eyja
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það fer fram einn leikur í Lengjudeild karla í dag og mætast þar tvö lið sem þurfa á þremur stigum að halda.

ÍBV fær lið Aftureldingar í heimsókn til Eyja en liðin sitja í öðru og níunda sæti deildarinnar fyrir leikinn.

ÍBV getur minnkað forskot Fram niður í sex stig á toppnum og getur á sama tíma komist sex stigum á undan Fjölni í þriðja sæti.

Afturelding er ekki búið að bjarga sér frá falli en liðið er sex stigum frá fallsæti fyrir þennan leik og myndu þrjú stig gera mikið.

laugardagur 31. júlí

Lengjudeild karla
14:00 ÍBV-Afturelding (Hásteinsvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner