Dönsku meistararnir leggja kapp á að fá Mikael til baka

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
AGF er eitt af þeim liðum sem Mikal Neville Anderson (1998) gæti farið til í sumar en líkur eru á því að hann yfirgefi sænska félagið Djurgården. Bold í Danmörku greinir frá.
Ár er frá því að Djurgården keypti Mikael frá AGF en möguleiki er á því að hann snúi aftur strax í sumar.
Samkvæmt heimildum Bold hafa dönsku meistararnir í AGF mikinn áhuga á því að fá sinn mann aftur til baka og eru þeir að reyna landa honum.

TENGT EFNI
Áhugi á Mikael í Sádi - „Ekki staðið við allt sem var rætt“
En AGF er ekki eini kosturinn. Al Qadsiah í Sádi-Arabíu og Malmö í Svíþjóð hafa einnig verið orðuð við kappann.
Djurgården greiddi AGF 15 milljónir danskra króna fyrir íslenska landsliðsmanninn síðasta sumar en það var upphæðin sem þurfti til að virkja riftunarákvæði í samningi hans. Mikael á að baki 39 A-landsleiki og hefur í þeim skorað tvö mörk. Hann var síðast í landsliðshópnum í mars.
Hann hefur skorað átta mörk í 22 leikjum fyrir Djurgården sem sagt er vilja fá sömu upphæð og félagið greiddi fyrir Mikael, eða jafnvel enn hærri, svo að salan fari í gegn. Hann er samningsbundinn í Stokkhómi til 2029.
Fari Mikael til AGF yrði hann liðsfélagi Tómasar Óla Kristjánssonar sem var í hlutverki í meistaraliðinu í vetur.